föstudagur, apríl 16, 2004
Ég verð að skella þessu inn. Þetta var á Kistunni.is:
Jess misster Pressident
Halló. Ha? Hver? Ó! Iss itt jú?. Vott a lovlí surpræs, misster pressident. Æ voss nott expektíng jú tú koll. Jess misster pressident, æ am verrí gladd tú hér fromm jú. Jess. Jess. Jess misster pressident. Jess. Æ agrí, misster pressident. Ví æsslanders verr viþ jú vonn hönndred prósent in ðe Íran vor. Jess. Nó, æ mín ðe Írak vor. Jess. Jú ar verrí velkom. Jess. Ví hav bín frends viþ jor neisjon for a verrí long tæm. Jess, bött ví vont tú havv ðe arrmí still inn Æsland, ví ar verrí vorríd ðat jú vill teik ðe arrmí avei fromm öss. Jess. Nónó. Nó, ðat is djöst sömm sillí ædea off the minnister off djöstiss. Itt is djöst hiss hobbí. Hiss hobbí, jess. Jess, ví vont tú kontinjú tú hav ðe amerríkan armí in Keflavík. Tú fæt for ðe dímókrosí, jess. Jess misster pressident, ví ar olsó nott afreid off ðe terrosists and viss tú sjóv ðem ver Deivíd bott ðe bíer. Jess. Nó, Deivíd. Jess. Bíer. Nó, nott mí, öððer Deivíd. Jess. It iss an óld æslandikk seying. Ðe Íraks, jess. Ví ver verrí gladd ðat jú sjóvd ðem ver Deivíd... æ mín ðat jú libbereited ðe neisjon. It iss djöst læk venn jú seivd ðe frents fromm Hittler. Jess. Ó, dónt vorrí, misster pressident, jú vill fænd ðis Bin Laden gæ verrí sún. Jess. And jú vill olsó fænd ðe sinnep gass. Jess. No. Jess. Vell, þank jú verrí möts. It vos næs tú hér fromm jú. Giv mæ rígards tú ðe först væf. Jess. Ðe först leidí, jess. Ókei Misster pressident. Hav a næs dei.
Vitiði hver var að hringja?
-Grænhöfði
posted by Helgi 6:35 AM
þriðjudagur, apríl 13, 2004
Kæru Íslendingar og aðrir jarðarbúar.
Þið eruð yndislegir. Þið eruð lágvaxnir, slánar, innskeifir, útskeifir, hjólbeinóttir, silalegir og tignarlegir. Þið eruð úfnir, vel greiddir, sköllóttir, með bauga undir augum, vel úthvíldir og geislandi af heilbrigði, ósmekklegir í klæðaburði eða fórnarlömb tískunnar. Margir eruð þið með sigin brjóst, lítil brjóst eða engin brjóst, sum þeirra eru stinn í nýjum brjóstahöldurum, önnur ekki í brjóstahöldurum. Þið eruð með björgunarhring – eða hringi, sumir þó með grjóthart þvottabretti. Sumir eru ljótir, samkvæmt ríkjandi fegurðarmati, en þó eru hér margir svanir.
Svanurinn er fallegur fugl. Hann er skjannahvítur með langan háls og stóra vængi. Svanurinn er líka grimmur og skapstyggur fugl sem á það til að ráðast á varnarlausar endur og stela af þeim brauði. Svanurinn nær lengra, hann hefur betra útsýni og er miklu stærri en önd sem gerir það að verkum að hann þarf meira brauð en litlar og ljótar endur. Það er gott að vera svanur.
Litlar, ljótar, skítugar og fjaðurreittar endur dreymir margar um að breytast í svan. Þær láta laga á sér gogginn, minnka í sér brauðmagann og lengja hálsinn. Þær synda til svananna og biðja þá um að hjálpa sér, leiðbeina sér í breytingaferlinu. Svanirnir eru fúsir til þess, fái þeir risastóran brauðhleif að launum.Síðan hefst þrotlaus þjálfun og sársaukafullar skurðaðgerðir þar til svanurinn stígur glæstur út úr eggi sínu. Litlu ljótu endurnar, sem breyst hafa í svani, streyma síðan upp á bakkann og sýna hinum ljótu öndunum hvað þær eru flottir svanir. Æðislegustu og smörtustu svanirnir velja síðan eina, umbreytta önd og krýna hana Fallegasta svaninnn. Svanirnir fljúga síðan hamingjusamir í oddaflugi á vit ævintýranna. Steggirnir sitja eftir í tjörninni, skítugir og ljótir, og gráta yfir því að allar ljótu endurnar séu farnar. Þeir óska þess að hinir nýumbreyttu svanir éti yfir sig af brauði og springi í loft upp.
Þið getið skoðað þetta ævintýri myndskreytt á Netinu. Slóðin er:
http://fox.com/swan/home.htm
Takk fyrir.
posted by Helgi 11:49 AM
föstudagur, apríl 09, 2004
Helgapabbinn snýr aftur. Börn hafa þann ótrúlega hæfileika að leika sér með mjög einfalda hluti í margar klukkustundir. Til dæmis Bionicle-karla, svona legodót sem er vélmennageimverur eða eitthvað þannig. Máni lék sér með tvo slíka í ca. 2 klst. í gær og nálægt 3 klst. í dag. Gæti fullorðin manneskja gert það? Ég leyfi mér að efast. Pæling fyrir sjónvarpsþátt í staðinn fyrir Ædolið, láta fólk byggja bioniclekarla og leika sér síðan með þá og sá sem endist lengst vinnur. Sé það fyrir mér ,,minn ætlar að lemja þinn, æ nei nú kemur þinns og lemur minns Óóóó" o.s.frv. Miklu skemmtilegra en laglaust, ófrumlegt fólk.
Annars fórum við feðgar í fótbolta í dag eða ÉG fór í fótbolta og Máni fór að renna sér í rennibraut. Skrítni helgapabbinn æfði sig í að halda bolta á lofti á leikvelli í nálægt klukkustund. Talandi um að leika sér með einfalda hluti. Ég er nú ekki mikill fótboltasnillingur eins og flestir vita, meira svona karatefótbolti eða eitthvað þannig hjá mér. Ég er aðallega góður í því að rjúka á menn og sparka í lappirnar á þeim, ekki mikill sóknarmaður enda var ég nú yfirleitt að gera eitthvað annað þegar önnur börn voru í fótbolta. Inni að borða súkkulaðibúðing til dæmis, litla feitabollan. Held það sé ágætt að vissu leyti að hafa verið feitt barn, þá hefur maður víti til að verjast og fær að kynnast ákveðinni niðurlægingu sem önnur börn fá ekki að kynnast. Mjög praktískt sem sagt.
Við Ólöf fórum á Dawn of the Dead í fyrradag. Dálítið svipuð 28 days later auðvitað, hvort tveggja svona lifandi dauðir stemning. Mér finnst þessa breska nú betri, meiri karakterar í henni og frumlegri saga. Það er auðvitað erfitt að tala um frumleika í svona myndum en þessi Dawn of ... er nú ansi flott og byrjunin og endirinn mjög frumleg. Það er óvenjulegt að fara á mynd þar sem byrjun og endir eru bestu partar hennar. Og kreditgrafíkin mjöög flott með Johny Cash undir, The Man comes around held ég að það heiti. Er að horfa á þetta helv.. American Idol. Hvernig nennir fólk að horfa á þetta helvíti? Svo er fólk að skammast yfir því að myndlist sé leiðinleg! Svo er þetta algjörlega endalaust drasl. Sá algjöra hörmung. Í Sky fréttatíma var verið að tala um nýja keppni í sjónvarpi sem heitir The Swan. Þar keppa dálítið búttaðar og frekar ófríðar dömur sín á milli í að verða sætar með hjálp lýtalækna og einkaþjálfara. Að lokinni breytingu verður síðan haldin fegurðarsamkeppni þar sem ein þeirra er valin sætust!! Þvílíkt rugl og asnaskapur. Það á að banna þetta.
Þeir sem ekki trúa kíkið á það hér hér er síðan hjá sjónvarpsstöðinni
posted by Helgi 2:10 PM
þriðjudagur, apríl 06, 2004
Níels rassmus Ísfeld fór enn einu sinni til dýralæknis í gær. Í þetta sinn var hann með sár á afturfæti og var á góðri leið með að sleikja fótinn af sér. Hann var alveg óður í bílnum á leiðinni til Dagfinns dýralæknis og gjörsamlega snar þegar dýralæknirinn fór að taka á honum. Dýralæknanemi hélt honum niðri en þó tókst Níelsi að klóra hann ca. 20 sm. löngum skurði á handlegg. Merkilegt að dýralæknar séu ekki í brynhönskum. Þetta var algjör niðurlæging fyrir greyið. Það var troðið pillu ofan í kok á honum, tennurnar skrapaðar allharkalega og tveimur risastórum sprautum stungið í bakið á honum. Þá var fóturinn vafinn og skermur settur á hausinn. Þetta var svo mikil raun að hann missti helminginn af feldinum á borðið hjá lækninum. Þegar heim var komið reyndi hann heillengi að bakka út úr skerminum og hristi fótinn stanslaust. Það var mjög fyndið að sjá það, maður hló eins og skepna en sagði samt æjæjæj..... Ég tróð sýklalyfi í kokið á honum í morgun og tókst bara vel, kannski hefði ég orðið góður dýralæknir?
posted by Helgi 3:49 AM
mánudagur, apríl 05, 2004
Æran er talin fela í sér tvo meginþætti, sjálfsvirðingu manns sem kölluð er huglæg æra og virðingu/álit annarra manna sem er þá hlutlæg æra. Þessa meginþætti má síðan yfirfæra í umfjöllun laganna um móðganir og aðdróttanir.
Móðgun getur bæði beinst gegn sjálfsvirðingu manns og haft áhrif á skoðanir annarra manna á hinum móðgaða. Aðdróttun er fólgin í ásökun á hendur öðrum sem getur orðið virðingu hans til hnekkis. Talað er um það að auðveldara sé að sanna efni aðdróttana heldur en móðgana, í rökfræðilegri sem og lögfræðilegri merkingu. Af öllu virðist sem aðdróttun verði að berast út til fjölda manna til þess að geta talist alvarleg og virðingu til hnekkis. Lögin fjalla oftar um aðdróttanir en móðganir sem hlýtur að leiða mann að þeirri ályktun að móðgun sé óæskilegra hugtak þar sem erfiðara er að bera kennsl á hana sem slíka. Aðdróttanir eru líka vel skilgreindar í lögum en móðganir ekki, málinu til stuðnings. 234. gr. hgl. segir að „hver, sem meiðir æru annars manns með móðgun í orðum eða athöfnum, og hver, sem ber slíka aðdróttun út, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að 1 ári“. Þar er í raun sagt að móðgun sé aðdróttun en ekki beint skilgreint hvers konar aðdróttun. Almennt talið að móðgun feli í sér vægari meingerð en aðdróttun.
Aðdróttanir eru hið grófara stig ærumeiðinga skv. túlkun Páls. Talið er að 235. gr. hgl. tæmi sökina, að einungis sé refsað eftir því ákvæði., refsiramminn er sá sami fyrir ,,einfalda aðdróttun“ og móðgun. Fyrrnefnd grein segir að „ef maður dróttar að öðrum manni einhverju því, sem verða myndi virðingu hans til hnekkis, eða ber slíka aðdróttun út, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að einu ári“. 236. gr. hgl. fjallar síðan frekar um ærumeiðandi aðdróttun út frá því hvort hún sé „borin út gegn betri vitund“. Það er harðar tekið á „auknum“ aðdróttunum en „einföldum“ og það er tekið jafnhart á útbreiðslu ærumeiðinga eins og ærumeiðingunni sjálfri. Þá kemur upp spurningin varðandi það hvort frásögn er ekki vítalaus ef almenningur þekkir hina æruðmeiðandi frásögn þá þegar. Í máli Þorgeirs Þorgeirssonar varð það honum til málsbóta að hann byggði að miklu leyti á frásögnum annarra. Mannréttindadómstóll Evrópu virðist hafa litið svo á að Þorgeir bæri ekki ábyrgð á útbreiðslu ummælanna því þau voru höfð eftir öðrum. Ærumeiðing virðist enn fremur byggjast á því að einhver taki við skilaboðunum eða meiðingunum og meiðandinn verður að hafa komið þeim áleiðis með vitund og vilja (skv. Gunnari Thoroddsen) Briglsyrði skv. 237. gr. hgl. geta falið í sér ásakanir sem kunna að vera aðdróttanir. Þannig er sú grein að vernda sjálfsvirðingu hins brigslaða.
Þó talað sé um móðgun þá virðist aðdróttun mun sterkari, sá hluti sem veit meira að virðingu manns gagnvart öðrum, bæði túlkunarlega sem lagalega. Aðdróttun er meira „út á við“ en móðgun frekar„inn á við“. Varla er hægt að fara í meiðyrðamál við einhvern ef aðeins einn annar heyrði til og ómögulegt ef enginn heyrði til. Sjálfsvirðing verður líka að vera aðskilin frá virðingu eða áliti annarra manna. Þannig geta menn talið vegið að sjálfsvirðingu sinni en enginn annar talið það þó. Listgagnrýni gæti talist á mörkum þessara tveggja hugtaka og oft erfitt að greina á milli. Listamaður gæti kært rýninn fyrir það að vega að sjálfsvirðingu sinni með því að draga úr áliti annarra á sér. Hann gæti gefið sér það að sjálfsvirðingin hafi boðið hnekki án þess að geta sannað það að álit annarra á honum hafi minnkað! Hann drægi þá ályktun út frá eigin viðbrögðum og túlkun á orðum gagnrýnandans.
Hvernig verður það með Laxnessbók Hannesar Hólmsteins? Ef niðurstaða dómsmálsins, sem ættingjar Halldórs Laxness hyggjast takast á hendur, verður Hannesi í vil gæti Hannes þá farið í ærumeiðingarmál í framhaldi af því? Sakað þau um „aukna aðdróttun“ þar sem mannorð hans hafi beðið hnekki í augum almennings? Hann gæti borið fyrir sig ákvæði í 239. gr. hgl. og „goldið líku líkt“ eins og þar stendur, sem í raun þýðir að menn megi hefna sín fyrir ummæli annars, tönn fyrir tönn svo að segja. Það er nú ekki sannkristið ákvæði. Ekki eru þó allir menn jafnir fyrir lögum þegar kemur að ærumeiðingum. Hannes er orðinn það opinber persóna og skotspónn almennings að slíkt væri hæpið. Mannréttindadómstóll Evrópu virðist þess sinnis, a.m.k. þegar stjórnmálaumræðu ber á góma. En í 12. gr. mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna segir að ekki megi vanvirða eða spilla mannorði nokkurs manns eftir geðþótta og í 17. gr. sáttmála S.þ. um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi er sagt að enginn skuli þurfa að þola ólögmætar árásir á heiður eða mannorð sitt. Í fyrra tilfellinu má því túlka sem svo að átt sé við virðing/álit annarra og í því síðara sjálfsvirðingu að mati Páls. Þjóðarréttur virðist vernda sjálfsvirðingu manna. Mannréttindasáttmáli Evrópu, sem Íslendingar hafa veitt lagagildi, virðist hins vegar ekki verja hina huglægu æru eða sjálfsvirðingu þar sem einungis er minnst á mannorð sem hlýtur að teljast hlutlægt. En það leiðir talið að stjórnarskránni okkar.
Í 73. gr. stj.skr. segir: ,,Tjáningarfrelsi má aðeins setja skorður með lögum í þágu allsherjarreglu eða öryggis ríkisins, til verndar heilsu eða siðgæði manna eða vegna réttinda eða mannorðs annarra, enda teljist þær nauðsynlegar og samrýmist lýðræðishefðum.“ Mannorð er þar nefnt en ekki heiður. Má því segja að sjálfsvirðingin sem slík, hin huglæga æra, sé ekki varin í stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu.
Móðgun sem ekki felur í sér aðdróttun beinist fyrst og fremst gegn sjálfsvirðingunni. Páll spyr því hvort ekki megi líta svo á að 234. gr. hgl. um móðganir hafi lítið vægi fyrst ekki er minnst á slíkt í þeim lögum sem eru æðri hegningarlögum. Hann telur líklegt að þetta vafaatriði geti leitt til þess að refsingar við einföldum móðgunum verði brot á tjáningarfrelsi þar sem það ákvæði stjórnarskrár og mannréttindasáttmálans vegi þyngra.
Huglægi þátturinn, sjálfsvirðingin, hefur því klárlega ekki sömu lagalegu verndina og hinn hlutlægi. Það hlýtur að teljast rökrétt í ljósi þess hvers eðlis hugtökin eru og líklegt að það byði upp á misnotkun ef einfaldar móðganir hefðu meira vægi fyrir lögum og hætta á að tjáningarfrelsinu og fjölmiðlum yrðu settar lagalegar skorður. Ég get ekki betur séð en að það sé réttlætanlegt að hin huglæga æra njóti minni réttar. Það er eiginlega spurning hvort ekki eigi hreinlega að fjarlægja allt tal um „móðgun“ úr hegningarlögunum þar sem það er afar veikt hugtak og illa skilgreint. Ærumeiðing gefur það til kynna að manneskja hafi hlotið þó nokkurn skaða sem persóna með einhverjum hætti. Það segir í raun allt sem segja þarf að talað sé um ,,huglæga” æru. Það sem er huglægt hlýtur að vera allt of afstætt til þess að dómstólar geti metið það af fullkomnum heiðarleika. Sem dæmi má taka að stjórnmálamaður kalli þekktan mann úr viðskiptalífinu „götustrák“ eða „mafíósa“. Ef þau ummæli færu fram á krá þannig að fáir heyrðu til myndi fólk líklega kalla það móðgun. En ef stjórnmálamaðurinn segir þetta í ræðustóli á Alþingi eða í sjónvarpsþætti þá eru þetta meiðyrði og aðdróttanir, miklu meira en móðgun og gæti jafnvel valdið þeim sem fyrir ummælunum verður fjárhagslegum skaða. Það liggur jú í augum uppi að slíkt væri ekki móðgun lengur heldur miklu stærra en það. Ég tel það því af og frá að slíkir þættir nytu sömu verndar fyrir lögum.
posted by Helgi 4:21 PM
Væri einhver annar en kærastan mín til í að kommenta einu sinni?
posted by Helgi 2:17 PM
þriðjudagur, mars 30, 2004
Ég fór með Mána á bíó um helgina. Við horfðum á Pétur Pan. Mér finnst þessi saga svona ágæt út af fyrir sig en sé alls kyns fýsnir og hneigðir fullorðinna út úr sögunni. Það hafa nokkur „syndrome“ verið búin til upp úr henni, „peter pan syndrome” um karla sem vilja ekki verða fullorðnir (Michael Jackson og Never never land búgarðurinn hans) og konur sem eru undirgefnar karlinum er Wendy dilemma eða eitthvað svoleiðis. Pan var náttúrulega spólgraður skógarpúki í goðafræðinni sem rak upp mikil öskur í kynæsingi sínum sem fyllti kvenverurnar ótta eða Panic. Hann er ósigrandi, fljúgandi drengur að breytast í mann og berst við gamlan og ljótan sjóræningja. Það er mikið klifað á því að Kobbi krókur sé gamall í myndinni. Ég áttaði mig á því að Lost Boys, blóðsugumyndin gamla, er skírð eftir strákunum í Pétri Pan sem hafa yfirgefið fjölskyldur sínar og búa með Pétri í draumalandi. Það er óhuggulegt að hugsa til hugsanlegrar barnahneigðar Michael Jackson og hrifningar hans af þessari sögu. Getur þó verið sakleysislegt.
Það er óskapleg væmni í myndinni en það er líka dálítið skemmtilegt að pabbinn í sögunni er líka Kobbi krókur. Var pabbi höfundarins einhvers konar flagð undir fögru skinni? Lamdi hann fjölskylduna en var engill þess á milli? Það er mjög skrítinn stemning í kringum mömmuna í myndinni, hún líður um í einhverju móki síbrosandi. Höfundurinn, James Barry, var víst hálfgerður dvergur sem átti við einhverja móðurkomplexa að glíma. Hann hætti að vaxa snemma á unglingsárum og sumir vilja tengja það við Pétur Pan. Wendy dilemma er ákveðið sálfræðifyrirbæri sem eignað er konum sem hafa hagað sér eins og mæður eiginmanna sinna en vilja hætta því. Eitthvað í þá átt. Pétur Pan vill nefnilega að Wendy verði mamma þeirra allra en verður ástfanginn af henni. Síðan er lítil fljúgandi skógardís ástfangin af Pétri og gríðarlega afbrýðisöm út í Wendy. Meiri vitleysan og sjálfsagt allt oftúlkun.
En myndin sjálf er mjög flott, rosa vel gerð og leikararnir góðir. Tinkerbell er voða flott líka....
posted by Helgi 4:41 PM
Ungur maður réðst á Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra í Laugardalslaug í dag sem olli vægu hjartaáfalli hjá Birni og var hann fluttur í skyndi á sjúkrahús. Að sögn lækna heilsast Birni vel en árásarmaðurinn er í haldi lögreglu.
Að sögn vitna var Björn að slaka á í heitapotti númer 4 í Laugardalslaug eftir daglegan sundsprett þegar ungur maður kom hlaupandi ofan í pottinn og greip dómsmálaráðherrann kverkataki. Tveir menn á sjötugsaldri voru staddir í pottinum og áttuðu sig á því hvað væri á seyði og komu Birni til hjálpar. Tókst öðrum þeirra að losa kverkatakið með því að slá árásarmanninn utan undir og tók hann þá á rás og stökk yfir grindverk sem skilur laugina og tjaldstæði ferðamanna að. Dómsmálaráðherra steig upp úr pottinum en hneig skömmu síðar niður fyrir framan eimbað laugarinnar og komu sundlaugarverðir honum til hjálpar og hringt var á sjúkrabíl. Reyndist Björn hafa fengið vægt hjartaáfall en læknar segja líkamlegt ástand hans gott og að eðlilegt sé að menn verði fyrir áfalli við slíkan atburð.
Lögreglan hóf þegar leit að árásarmanninum og náði honum um hálftíma eftir atburðinn á hlaupum í lystigarði Laugardals á rauðri Speedo sundskýlu einni fata. Að sögn lögreglu var sakborningurinn færður í klæði og yfirheyrður en mennirnir tveir úr heita pottinum báru kennsl á manninn. Lögreglan segir lítið samhengi hafa verið í máli mannsins við yfirheyrslur og er hann nú til rannsóknar hjá geðlækni. Húsleit var gerð á heimili mannsins og fundust þar ógrynni útprenta af heimasíðu dómsmálaráðherra og úrklippur úr dagblöðum með greinum eftir Björn og stór andlitsmynd á vegg sem í stóðu pílukastspílur. Lítið altari fannst í íbúðinni þar sem kerti höfðu brunnið og leirdúkka lá á því með álímdri andlitsmynd dómsmálaráðherra og hafði tugum títiprjóna verið stungið í hana. Telur lögreglan að árásarmaðurinn hafi verið heltekinn af persónu dómsmálaráðherra og að árásin hafi verið vandlega undirbúin. Einnig fundust nokkrar rörsprengjur merktar Birni og teikningar af húsinu hans.
Lögreglan vildi ekki gefa upp nafn sakbornings en Dagblaðið Vísir komst á snoðir um það og birti nafn og mynd af manninum í dagblaði dagsins. Árásarmaðurinn er 25 ára gamall háskólanemi að nafni Sölvi Tryggvason og býr hann í nágrenni við Laugardalslaug. Fréttastofan náði tali af bekkjarfélaga Sölva í hagnýtri fjölmiðlun sem vill ekki láta nafns síns getið en segir Sölva dagfarsprúðan og dreng góðan. Bekkjarfélagar hans hafi þó tekið eftir ákveðinni þráhyggju varðandi dómsmálaráðherra sem hafi ágerst seinustu daga og hafi þeir óttast að svona myndi fara eftir að Sölvi flutti þeim öfgafullan pistil þar sem hann gagnrýndi Björn harðlega fyrir skoðanir sínar. Ekki náðist í dómsmálaráðherra í dag vegna atburðarins en heimildir fréttastofu herma að hyggist leggja frumvarp fyrir Alþingi þess efnis að stofnuð verði sérstök sundlaugasérsveit fyrir höfuðborgarsvæðið.
posted by Helgi 3:20 PM
miðvikudagur, mars 24, 2004
Hafið þið, kæru lesendur, lent í hinu svo kallaða lögmáli Murphy? Ég þekki sögu þessa ágæta Murphy en lögmálið gengur út á það að lengi geti vont versnað, að eitt slæmt leiði til annars. Megas benti þó á það að böl mætti bæta að benda á eitthvað annað. Það er gott að hafa hugfast þegar maður lendir í þvottavélarglímu.
Sagan hefst á því að fyrir nokkrum dögum er ég að sinna húsverkum eins og metrósexúal manni sæmir. Sem ég beygi mig niður að þvottavélaropinu til þess að sækja þvottinn í trommuna þá verður mér það á í hugsunarleysi að styðja mig við hurðina á vélinni. Ég studdi mig nú ekkert mikið við hana en þó brotnaði lömin öðru megin. Ég tók því nú bara furðuvel þar sem ég var of syfjaður til þess að æsa mig yfir því. Okkur tókst að þvo þvott þrátt fyrir lamarlömunina, hurðin hélst föst við opið.
Í gær ákveð ég að hringja í Raftækjaverslun Íslands og athuga hvort til sé slík löm. Kerling þar glaðleg segir að hún sé ekki til stök en hún geti látið mig hafa hurð og löm á 3 þús. kall í stað þess að bíða eftir löm sem kostar 1900. Mér finnst það ágætis díll og bið hana að taka frá draslið. NB!! Ég var búinn að segja henni hvaða tegund þetta væri, Creda Advance 1000!! Ég bið miðaldra móður mína að gera mér þann greiða að sækja draslið. Hún gerir það auðvitað af því hún er svo góð lítil mömmukerling. Hurðin lítur nú ekki eins út og hin en lömin þannig að hún virðist smella. Ég geri þau mistök að treysta því að þetta hafi verið rétt hjá hel..... konunni í búðinni. Kemst að því að ekki er hægt að fjarlægja skemmdu lömina án þess að stykki innan í vélinni losni. Það losnar og ég þarf að taka allt draslið úr sambandi og leggja vélina á bakið samkvæmt tilmælum verskstæðisstarfsmanns Raftækjaverslunar Helvítis. Tekst að finna stykkið aftur. Tekur þá við glíma að skipta um löm á hurðinni. Kemst að því að nýja hurðin passar ekkert þó svo löm sé á og framlenging. Skrúfa hurðina í sundur, tek löm úr, set á gömlu hurðina, loka henni, skrúfa báðar hurðir saman aftur. Kemst þá að því að gamla hurðin passar ekki heldur með þessari löm. Æ já ég gleymdi því að karlinn í R.H. (Raftækjaverslun Helvítis) sagði að ég þyrfti bara að taka sápuboxið úr vélinni og þá kæmist ég að staðnum sem lömin ætti að skrúfast í. Það var auðvitað rangt. Sem sé mikill tími farinn í tilgangsleysi, allt rennandi blautt á gólfinu og ég eins og eldfjall í miðju gosi. Þeir sem þekkja mig vel vita að ég er ekki þolinmóðasti maður í heimi og svona hlutir gera mig brjálaðan. Ólöf passaði sig því að hjálpa mér ekki þar sem hún veit að Herra Hyde kemur fram við slíkar aðstæður. Hann kom seinast fram af fullum krafti þegar ég setti saman útigrillið. Það er eitthvað mesta helvíti sem ég hef lent í. Veit fólk að það eru ábyggilega 300 skrúfur í einu sakleysilegu útigrilli? Í miðju brjálæðiskasti yfir þvottavélinni hringir svo 'Islensk grafík í mig og minnir mig á 30 þúsund króna skuld sem ég þurfi að borga. Takk kærlega.
Dagurinn í dag byrjaði hins vegar vel þar sem Ólöfu tókst að fá miða á Pixies. Litli krúttið fór í útigallann sinn og trítlaði upp í Skífu með vinkonu sinni og beið þar í tvo tíma í kuldanum á meðan ég svaf heima. Hehehehe. Debaser!! This monkey´s gone to heaven!
Gerið mér nú greiða og skrifiði mér ykkar reynslu af lögmáli Murphys hér í kommentapokann fyrir neðan.
posted by Helgi 2:24 AM